Reglubundið eftirlit og viðhald á lyftum og rennistigum, Gæði, áreiðanleiki, viðbragðsflýtir og öryggi.
HÉÐINN Schindler sinnir eftirliti með ýmum gerðum af lyftum og rennistigum frá ýmsum framleiðendum. Eftirlitið fer fram skv. gæðakröfum Schindler og íslenskum reglum.
Reglubundið eftirlit tryggir gangöryggi og endingu búnaðarins. Mikið úrval varahluta tryggir að lyftur þurfi ekki að vera lengi úr umferð vegna bilunar.
Allir starfsmenn hafa fengið mikla þjálfun hér heima í viðgerðum og viðhaldsþjónustu. Starfsmenn okkar sækja reglulega kennaranámskeið í höfuðstöðvum Schindler í Sviss. Þaðan koma líka sérfræðingar og halda námskeið hér.
Starfsmenn okkar eru á bakvöktum allan sólarhinginn, alla daga ársins.
Eftirlit og viðgerðir á lyftunum annast rafvirkjar og vélvirkjar. Flestir eru með meistararéttindi í sinni iðngrein.
Með tölvum okkar og nauðsynlegum tækjabúnaði frá framleiðendum getum við lesið bilanakóða og með handbókum leiðbeint um stillingar einstakra hluta.
Iðnmenntaðir starfsmenn tryggja góða þjónustu á sem skemmstum tíma. Það kemur öllum til góða, notendum, rekstraraðila og eigendum búnaðarins.
Við störfum með þér til að tryggja rekstur búnaðarins og að hann sé alltaf áreiðanlegur. Með lægsta mögulega stöðvunartíma. Viðhaldmenn okkar starfa þannig að starfsemi byggingarinnar verði fyrir sem minnstri truflun. Með Schindler þér við hlið, getur þú minnkað áhættu, uppfyllt lagalegar kröfur og tryggt áframhaldandi rekstur. Látum Schindler hjálpa þér að gefa aukin gæði til notenda og viðskiptavina þinna með því að halda heildarrekstrarkostnaði lágum.