Áreiðanleiki og öryggi hafa aldrei verið svo góð. Endurnýjaðu eldri búnað með nýjum byltingarkenndum Schindler 9300 eða Schindler 9700 rennistigum eða með Schindler 9500 gönguböndunum.
Allt eftir hönnun byggingar þinnar getur það að skipta út núverandi rennistigum með nýjum orðið til þess að auka hraða, nýtni og verið hagstæðara en úrbætur eða endurnýjun.
Þökk sé vinnuferli okkar við að fjarlægja gamlan búnað og að setja upp nýja Schindler rennistiga og göngubönd í eldri byggingar, er truflunum á staðnum haldið í lágmarki.
Nýi Schindler rennistiginn eða göngubandið mun ekki einungis líta betur út, heldur munu notendurnir einnig verða hrifnir af jafnari og hljóðlátri ferð. Forhannaðir rennistigar frá Schindler nota nýjustu tækni, íhluti og efni til að veita jafnan og stöðugan rekstur.
Schindler rennistigar eða göngubönd eru hönnuð til að veita hæsta stig notkunar til að hámarka ánægju rekstraraðila og láta bygginguna einnig uppfylla allar nýjustu reglugerðir og öryggisstaðla.
Schindler notar snjallorkustýringu, orkusparandi drif- og stjórnbúnað og léttari efni til að minnka orkunotkun rennistiga og göngubanda um allt að 30%.