Viltu flytja þungan farm og vörur? Á háum hraða og yfir lengri tíma? Ef svo er þá er Schindler 2600 rétti kosturinn fyrir þig. Við höfum útbúið lyftuna með auka burðargetu til að mæta mismunandi þörfum. Það passar alveg eins vel í vöruhúsi og í verslunarmiðstöð eða verksmiðju. Það leysir flókin flutningsverkefni á einfaldan, sveigjanlegan, endingargóðan og kostnaðarsparandi hátt.
Innanrýmið er mikið og þær geta borið mikinn þunga. Þær henta sérstaklega vel fyrir margþætta flutninga í vöruhúsum, verslanamiðstöðvum eða þar sem iðnaðarstarfsemi fer fram. Það má setja þær upp nánast hvar sem er. Þær endast vel og lengi með lágmarks rekstrarkostnaði. Sérsniðnar fyrir þínar þarfir.
Lyftur af gerðinni Schindler 2600 eru meðal hinna stærstu sem framleiddar eru og með einna mestu burðargetu. Þær geta flutt fjölda fólks og varning. Þær komast fyrir í flestum stórum stokkrýmum. Uppsetning er auðveld, þær eru sterkbyggðar og traustar og orkunýtnar.
Schindler 2600 lyftan er háþróuð listasmíð. Hún er byggð úr forsamsettum íhlutum og þess vegna er fljótlegt að setja hana upp. Velja má um tvenns konar stýrikerfi eftir því hvort um víralyftu eða vökvalyftu er að ræða en bæði kerfin eru hönnuð með hámarks orkunýtingu í huga. Þessi lyfta er bæði sterkbyggð og traust.
Einkenni | Upplýsingar | Einkenni | Upplýsingar |
---|---|---|---|
Burðargeta | 1000 - 4000 kg, 13 - 53 manna | Klefabreidd | 1000 - 2500 mm í 50 mm þrepum |
Hraði | 0,8 - 1,6 m/s | Klefalengd | 1400 - 4000 mm í 50 mm þrepum |
Lyftihæð | 65 m | Klefahæð | 2000 - 2500 mm í 100 mm þrepum |
Hæðir | 21 | Hurðabreidd | 900 - 2500 mm í 100 mm þrepum |
Klefahurðir | 1 eða 2 (gegnumgeng) | Hurðahæð | 2000 - 2500 mm í 100 mm þrepum |
Þar sem þessi lyftugerð býður upp á mjög breytilegar stærðir þarf að skoða óskir verkkaupa og hönnuða varðandi stærðir á lyftu, hurðum og stokk. Hafið samband við okkur og við aðstoðum við val.
Ef uppfæra þarf lyftuna til samræmis við nýjustu staðla og til að bjóða betri þjónustu og þægindi fyrir notendur má treysta búnaðinum frá Schindler.
PORT-tæknin umbyltir hugsun við bestun á umferðarflæði í gegnum byggingu og samtímis boðið er upp á persónulega þjónustu og aðgangsstýringu.
Schindler pakkarnir okkar eru hannaðir til að uppfæra lyftuna með ýmsum valkostum fyrir þægindi, aðgengileika eða hagkvæmni.