Schindler 6500 lyftunni fylgir nýjasta tækni áfangastaðastýringar sem greiðir leið og flýtir för þegar mikið liggur við. Uppfyllir nýja lyftustaðalinn EN81-20 og 50.
Einkenni | Upplýsingar |
---|---|
Burðargeta | 630 kg - 2.500 kg, 8 - 33 manna |
Lyftihæð | allt að 150 m og 50 hæðir |
Hraði | frá 1,0 m/s að 3,0 m/s |
Schindler 6500 lyftan er sem sniðin fyrir atvinnuhúsnæði með einstaklega góðu aðgengi og rými í lyftuklefanum. Klefinn lagar sig að lyftustokknum með 50 mm þrepum og dyrnar má staðsetja með eins millimetra þrepum, nákvæmlega þar sem þeim er ætlað að vera.
Schindler 6500 lyftan er búin nýjustu tækni á sviði hreyfiafls og áfangastaðastýringu. Hún stendur eldri gerðum af lyftum mun framar. Hún er fljótari í förum, hljóðlátari og býður meiri þægindi.
Stillið saman litum, efni, lýsingu og hnappabúnaði úr fjórum völdum útgáfum af klefaútfærslum eða hannið klefann eftir eigin höfði. Hönnun á Schindler 6500 lyftunni býður fjölbreytt úrval af nær takmarkalausum möguleikum í útfærslu á klefanum.
Schindler 6500 lyftan eyðir allt að þrjátíu prósent minni orku en fyrri kynslóð af sambærilegum lyftum og er þannig hagkvæmari í rekstri og vistvænni.
Ef uppfæra þarf lyftuna til samræmis við nýjustu staðla og til að bjóða betri þjónustu og þægindi fyrir notendur má treysta búnaðinum frá Schindler.
PORT-tæknin umbyltir hugsun við bestun á umferðarflæði í gegnum byggingu og samtímis boðið er upp á persónulega þjónustu og aðgangsstýringu.
Schindler pakkarnir okkar eru hannaðir til að uppfæra lyftuna með ýmsum valkostum fyrir þægindi, aðgengileika eða hagkvæmni.